11.890 kr.
Vönduð vesti úr 3 mm Super Stretch Neoprene efni. Vestið er saumað með sterkum nælonsaumu, með grófum og öflugum rennilás. Breið hlíf er yfir rennilásnum sem er fest niður með sterkum frönskum rennilás. Frábært í veiðina í aðstæðum þar sem kalt eða blautt er. Vestið ver innri líffæri hundsins og heldur á honum hita auk þess að verja líkama hundsins fyrir girðingarstaurum eða girðingum.
– Girðingar, girðingastaurar, stórgrýti og fleiri hlutir í náttúrunni geta valdið hundinum miklum skaða – vestið kemur í veg fyrir að hann slasist fari svo að hann hlaupi á eða utan í eitthvað. Verjum hundana okkar áður en slysin gerast.
Vestin eru öll í RealTree Max5 camo.
Gott ráð er að nota vestið á æfingum fyrir veiðina til að venja hundinn við að vera í því.
Stærð | Hálsmál | Brjóstmál | Kviðmál |
Small | að 17″ | að 27″ | að 24″ |
Medium | að 19″ | að 27″ | að 24″ |
Large | að 21″ | að 30″ | að 27″ |
xLarge | að 22″ | að 32″ | að 28″ |
xxLarge | að 25″ | að 34″ | að 30″ |
xxxLarge | að 27″ | að 36″ | að 32″ |
Hálsmál – mælt er ofan við bringubein og hringinn í kringum háls
Brjóstmál – mælt er aftan við framfætur, yfir dýpsta punkt brjóstkassans og hringinn yfir axlir.
Kviðmál – mælt er aftan við öftustu rifbein og hringinn yfir bakið.