12.690 kr.
Frábær vesti úr PVC efni sem er einstaklega slitsterkt. Vestin gera hundinn sýnilegan á veiðum eða í lausahlaupi. Situr vel á líkamanum og hindrar ekki hreyfingar hundsins.
Extreme vestið hefur ermar úr teygjanlegu lycra efni að framan til að verja fæturnar fyrir kali og snjósöfnun. Einnig er lycra efni meðfram síðunum á vestinu svo það gefur örlítið eftir og mýkir það upp.
Vestið ver mikilvæg svæði líkamans, t.d. spena á tíkum í harðfenni eða hrauni.
Auðvelt er að skrifa á vestin með merkipenna og einnig er hægt að líma ljós á vestin, t.d. með vöðlulími.
Stærð | Brjóstmál |
Stærð 1 | 59-64 cm |
Stærð 2 | 62-67 cm |
Stærð 3 | 65-70 cm |
Stærð 4 | 68-73 cm |
Stærð 5 | 71-76 cm |
Stærð 6 | 74-76 cm |
Mæla skal brjóstmál þar sem bolur hundsins er breiðastur – yfir bak og undir kvið aftan við framfætur.
ATH! Vestin eru sniðin eftir vexti fuglahunda og eru því líklega með aðeins of síðar ermar fyrir hundategundir með styttri fætur.