12.890 kr.
Glæsilegt 5 mm neoprene vesti í RealTree Max5 camo. Vestið er með stórum og sterkum rennilás á bakinu auk þess að breið hlíf yfir rennilásinn er fest niður með frönskum rennilás.
Vestið ver innri líffæri hundsins og heldur á honum hita auk þess að verja líkama hundsins fyrir girðingarstaurum eða girðingum.
– Girðingar, girðingastaurar, stórgrýti og fleiri hlutir í náttúrunni geta valdið hundinum miklum skaða – vestið kemur í veg fyrir að hann slasist fari svo að hann hlaupi á eða utan í eitthvað. Verjum hundana okkar áður en slysin gerast.
Vestið hjálpar hundinum að haldast á floti í lengri sóknum í vatni.
Öryggishandfang er á bakinu á vestinu svo auðvelt sé að hífa hundinn upp úr vök, upp í bát eða úr skurði.
Stærð | Hálsummál | Ummál bringu |
Small | 38 cm | 61 cm |
Medium | 43 cm | 66 cm |
Large | 46 cm | 71 cm |
xLarge | 48 cm | 79 cm |
xxLarge | 51 cm | 84 cm |
xxxLarge | 53 cm | 89 cm |